Róbert sýnir ljósmyndir "Undir stiganum"

Róbert Ingimundarson við ljósmyndir sínar
Róbert Ingimundarson við ljósmyndir sínar

Fimmtudaginn 3. maí kl. 18 verður opnuð ný sýning á Bæjarbókasafni Ölfuss.

Fimmtudaginn 3. maí kl. 18 verður opnuð ný sýning á Bæjarbókasafni Ölfuss. Nú er það Róbert Karl Ingimundarson sem sýnir ljósmyndir sem hann hefur tekið á síðustu tveimur árum. Róbert er áhugamður um ljósmyndun og hefur gott auga fyrir myndefni og birtu. Á sýningunni verða sérlega vel heppnaðar náttúrumyndir þar sem sólin og vatnið gegna veigamiklu hlutverki. Allar eru myndirnar stækkaðar upp og prentaðar á striga.
Þetta er í annað sinn sem Róbert heldur sýningu á ljósmyndum á bókasafninu og sem fyrr býður bókasafnið gestum á opnun upp á kaffi og konfekt.
Sýningin stendur yfir til maíloka og er opin á opnunartíma bókasafnsins.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?