Sameiginleg yfirlýsing

Sameiginleg yfirlýsing

Í tilefni fréttar Ríkisútvarpsins í gær og í dag um að fyrirhuguð kísilmálmverksmhofniðja í Þorlákshöfn yrði staðsett i Grindavík en ekki Þorlákshöfn vilja bæjaryfirvöld í Ölfusi og forsvarsaðilar Thorsil ehf upplýsa að engar breytingar hafa orðið á þeirri fyrirætlan Thorsil ehf að staðsetja verksmiðju sína í Þorlákshöfn.  Unnið er að verkefninu samkvæmt áætlun, þ.m.t. úthlutun lóðar fyrir starfsemina og gert er ráð fyrir að á næstunni hefjist grunnrannsóknir vegna fyrirhugaðs umhverfismats.

Sigríður Lára Ásbergsdóttir, forseti bæjarstjórnar Ölfuss
Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?