Markmiðið er að börnin hittist reglulega, taki þátt í sameiginlegum viðburðum og fái að leika og læra saman þegar tækifæri gefst.
Leikskólarnir Bergheimar og Hraunheimar í Þorlákshöfn hafa tekið höndum saman og hafið formlegt samstarf sem markar nýtt og spennandi skref í leikskólastarfi sveitarfélagsins. Hraunheimar er nýr leikskóli sem verður kærkomin viðbót við leikskólastarf í Ölfusi, en hann opnar dyr sínar og tekur á móti fyrstu nemendunum 1. september 2025. Tilkoma Hraunheima er liður í að bregðast við ört vaxandi þörf í samfélaginu, sem hefur stækkað hratt undanfarin ár.
Bergheimar hefur verið hornsteinn leikskólastarfs í Þorlákshöfn um árabil og boðið uppá öflugt, gott og faglegt starf. Þar starfar frábært og reynslumikið starfsfólk sem hefur lagt metnað sinn í að skapa öruggt og hvetjandi umhverfi fyrir börnin í bænum. Fjöldi barna hafa stigið sín fyrstu skref í gegnum árin í umhyggjusömu og skapandi umhverfi Bergheima, og leikskólinn nýtur trausts og virðingar í samfélaginu.
Með samstarfi leikskólanna tveggja er lagður grunnur að sameiginlegu leikskólasamfélagi þar sem hagur barnanna er ætíð í forgrunni. Samfélagið í Þorlákshöfn er lítið og nærtækt – þó það stækki ört – og öll börnin ganga að lokum í sama grunnskóla. Það skiptir miklu máli að börn fái tækifæri til að kynnast, mynda tengsl þvert á leikskóla og að viðhalda þeim tengslum sem nú þegar hafa myndast.
Í upphafi verður lögð sérstök áhersla á samstarf elstu árganganna á Bergheimum og Hraunheimum. Markmiðið er að börnin hittist reglulega, taki þátt í sameiginlegum viðburðum og fái að leika og læra saman þegar tækifæri gefst.
Þetta samstarf er mikilvægt skref í áframhaldandi þróun leikskólastarfs í Þorlákshöfn og sýnir vilja til samheldni og samvinnu innan samfélagsins. Með sameiginlegum kröftum er unnið að því að skapa jákvæðar tengingar milli barna og styrkja grunninn að farsælli skólagöngu og góðum samskiptum til framtíðar.
Leikskólastjórar