Komdu með – þú ert velkomin(n)!
Öllum íbúum Ölfuss sem eru 60 ára og eldri og öryrkjum er boðið upp á líkamsþjálfun þar sem markmiðið er að byggja upp og efla líkamlega og andlega heilsu. Hreyfing getur verið góð leið til að styrkja líkamann, auka vellíðan og öðlast meiri orku í daglegu lífi. Mikilvægt er að hver og einn finni hreyfingu sem hentar og taki þátt á sínum eigin forsendum.
Sjá nánari upplýsingar um þjónustu fyrir eldra fólk í Ölfusi
Síung er vefur eldri borgara í Sveitarfélaginu Ölfusi. Vefurinn á að veita félagsmönnum upplýsingar um starfsemi félagsins, hagnýtar upplýsingar um þjónustu í héraði. Aðgengi að upplýsingum um réttindi og skyldur, hvernig er að eldast, fræðslu og nám. Félagsmenn geti nýtt vefinn til að koma hugðarefnum og skoðunum sínum á framfæri.
Sjá stundaskrá líkamsþjálfunar hjá Færni fyrir haustönn 2026:

Á Níunni, Egilsbraut 9 er aðstaða fyrir félagsstarf aldraðra. Þar gefst gott tækifæri til að hitta fólk, eiga góðar stundir saman og taka þátt í ýmiss konar afþreyingu.
Félagsstarf er ekki aðeins skemmtilegt heldur getur það einnig styrkt félagsleg tengsl, aukið lífsgæði og stuðlað að meiri virkni í daglegu lífi.
Við hvetjum íbúa til að nýta sér þau tækifæri sem í boði eru til félagsstarfs, hreyfingar og samveru. Hvort sem þú ert að leita að félagsskap, vilt auka hreyfingu eða einfaldlega prófa eitthvað nýtt, þá er gott að stíga fyrsta skrefið.
Það er aldrei of seint að byrja – hvert skref skiptir máli!