Jólaljósin eru farin að ljóma víða í Ölfusi
Eftir vel heppnaða skammdegishátíð er undirbúningur fyrir jólahátíðina kominn á fullt. Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Ölfuss hafa hafið uppsetningu jólaljósasería og skreytinga víða um sveitarfélagið. Skrúðgarðurinn er þegar farinn að ljóma og víða má sjá íbúa huga að jólaljósum og skreytingum við heimili sín.
Líkt og undanfarin ár verður gefið út aðventudagatal Ölfuss með yfirliti yfir helstu viðburði, sýningar, leiki og skemmtanir á aðventunni. Félög, skólar, stofnanir og þjónustuaðilar eru hvött til að senda inn upplýsingar um viðburði sem fram fara í sveitarfélaginu á aðventunni.
Viðburði má skrá á heimasíðunni olfus.is undir Veist þú um viðburð? eða senda upplýsingar á jmh@olfus.is fyrir 18. nóvember.
Á döfinni á aðventunni
Jólaljós tendruð í Skrúðgarðinum
Föstudaginn 27. nóvember kl. 17:00 verða jólaljósin á bæjarjólatrénu tendruð í Skrúðgarðinum. Lúðrasveitin leikur, barnakór grunnskólans syngur og Grýla, Skjóða og jólasveinarnir mæta til að gleðja gesti. Bæjarjólatréð verður fallega skreytt af þessu tilefni.
Jólatrefill Ölfuss 2026
Nú er tilvalið að taka fram prjónana, heklunálina eða aðrar föndurgræjur og taka þátt í hönnunarsamkeppninni Jólatrefill Ölfuss 2026.
Jólatrefillinn skal vera frumlegt hugmyndaverk og má vera prjónaður, heklaður, saumaður, unninn úr endurunnum efniviði eða með öðrum skapandi hætti. Stefnt er að því að bjóða upp á föndurstund á bókasafninu í tengslum við verkefnið.
Skilafrestur er til 17. desember. Verðlaun verða veitt fyrir jólalegustu, skemmtilegustu og frumlegustu hönnunina, auk þess sem verkin verða til sýnis á Bæjarbókasafni Ölfuss.
Skreyttir jólasveinagluggar
Þann 12. desember, þegar Stekkjastaur kemur fyrstur til byggða, verða opnaðir skreyttir jólasveinagluggar víða um bæinn. Hver gluggi gefur vísbendingu um einn af íslensku jólasveinunum. Þjónustuaðilar og fyrirtækjaeigendur sem hafa áhuga á að taka þátt og skreyta jólasveinaglugga eru hvattir til að hafa samband á jmh@olfus.is.
Aðventustemning fyrir alla
Margt fleira verður í boði á aðventunni, svo sem jólamarkaðir, jólatónleikar, sýningar og fjölbreyttar jólaskemmtanir.
Við hvetjum íbúa til að njóta jólaundirbúningsins, taka þátt í viðburðum og skapa ljúfar minningar í góðri samveru á aðventunni. 🎄✨