Sjómannadagshelgi með sjóræningjastemningu í Þorlákshöfn
Það verður fjölskyldufjör og hátíðarstemning í Þorlákshöfn sjómannadagshelgina 5.–7. júní.
Fjölbreytt afþreying er í boði fyrir alla aldurshópa: fjölskylduskemmtun á Herjólfsbryggju, sjóræningjafjör í íþróttahúsinu, kynningamyndband um landeldi rúllar á skjá, spjall um köld böð með Þóri, sjómannadagsgleði, hoppukastalar, kaffisala, hopp í sjóinn og margt fleira.
Á laugardeginum verður glæsileg fjölskylduskemmtun á útisviði við Herjólfsbryggju kl. 14 þar sem m.a. hinir vinsælu Gunni og Felix skemmta og kynna. Gedda gulrót og Maja jarðarber úr Ávaxtakörfunni eru á ferðinni og skemmta kátum krökkum með fjöri og söng. Að lokum sýnir Axel einhjólari listir sínar.
Það verður sannkölluð ævintýrastemning fyrir unga sjóræningja í íþróttahúsinu þar sem krakkar og fjölskyldur geta tekið þátt í spennandi fjársjóðsleit og þrautabraut í anda Pirates of the Caribbean.
Á sjálfan sjómannadaginn verður hátíðleg sjómannadagsmessa í Þorlákskirkju og glæsilegt kaffihlaðborð í Versölum þar sem bæjarbúar og gestir geta komið saman og notið samverunnar.
Sundlaugin í Þorlákshöfn verður opin alla helgina fyrir þá sem vilja slaka á eða skella sér í sund á milli viðburða.
Allir eru hvattir til að leggja leið sína til Þorlákshafnar og njóta skemmtilegrar sjómannadagshelgar.
