SKRÁNING ER HAFIN Í GÖNGUM Í SKÓLANN 2023

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samtarfsaðilum ræsir verkefnið Göngum í skólann í sautjánda sinn, miðvikudaginn 6. september nk. Ætlar þinn skóli ekki örugglega að taka þátt í ár?

 

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Til heilsueflandi sveitarfélaga

Notum virkan ferðamáta!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?