Söfnun jólatrjáa í Þorlákshöfn, flugeldar hreinsun og förgun og opnunartími gámasvæðis við Hafnarskeið

Dagana 8. og 9.janúar munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar annast hirðingu jólatrjáa í bænum.  Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlega beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðarmörk fyrir þann tíma og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið og valdið tjóni.

Einnig geta íbúar losað sig við jólatrén á gámasvæði Sveitarfélagsins Ölfuss á opnunartíma. Það þarf ekki miða til að skila inn jólatrjám.

Flugeldar – Hreinsun og förgun

Mikið rusl fellur til um áramót þegar tonnum af flugeldum er skotið á loft. Við hvetjum íbúa til að sýna gott fordæmi og hreinsa upp eftir sig og koma í förgun á gámasvæði Sveitarfélagsins. Það þarf ekki miða þegar komið er með þetta á gámasvæðið. Ef sem flestir gefa sér tíma í það á nýja árinu að fegra nærumhverfi sitt og aðstoða þá komum við bænum í gott horf fljótt og örugglega að áramótunum liðnum.

Gámasvæði við Hafnarskeið                             
Opnunartími:                                                                   
Mánudaga - fimmtudaga frá kl. 15:00 - 18:00                                                               
Föstudagar frá kl. 13:00 – 18:00                                                                                  
Laugardagar frá kl. 12:00 - 16:00

Sími: 483-3817

Vinsamlega gangið vel um og losið ekki úrgang af neinu tagi utan gámasvæðis.

Nýárskveðjur,

Davíð Halldórsson
umhverfisstjóri

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?