Staða skólastjóra Grunnskólans í Þorlákshöfn er laus til umsóknar

Skólastjóri Grunnskóla Þorlákshafnar – Sveitarfélagið Ölfus

Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir að ráða skólastjóra við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Leitað er að metaðarfullum og lausnamiðuðum leiðtoga sem býr yfir þekkingu og skýrri sýn á skólastarfi og veitir faglega forystu til framtíðar þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa, áhuga og getu nemenda. Mikilvægt er að skólastjóri sé tilbúinn að viðhalda þeim góða skólabrag sem hefur einkennt starf Grunnskólans í Þorlákshöfn.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
  • Fagleg forysta skólans um þróun náms og kennslu og farsæld nemenda
  • Ábyrgð á framþróun í skólastarfi
  • Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
  • Fjármál og rekstur
  • Leiða samstarf starfsfólks, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild
  • Samstarf við fjölskyldu og fræðslunefnd, sviðsstjóra, bæjarstjóra og bæjarstjórn

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
  • Farsæl reynsla af rekstri, stjórnun og skólaþróun er æskileg
  • Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogafærni, metnaður og styrkur til ákvarðana
  • Þekking á þeim lögum, reglugerðum og öðrum opinberum fyrirmælum sem varða skólastarf
  • Þekking á möguleikum og takmörkunum stafrænnar tækni í skólastarfi
  • Skipulagshæfni og góð yfirsýn
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti

 

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1. ágúst 2026.

 

Leiðarljós skólastefnu Ölfuss er að skapa nærandi lærdómssamfélag öllum hagaðilum til heilla og að hver einstaklingur fái tækifæri til vaxtar og þroska í gjöfulu umhverfi. Upplýsingar um Grunnskólann í Þorlákshöfn má finna á heimasíðu skólans, Grunnskólinn í Þorlákshöfn

 

Með umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfallið er 100%. Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið.

Sótt er um starfið í gegnum vef Hagvangs: Umsókn skólastjóri Grunnskóla Þorlákshafnar

 

Nánari upplýsingar

Jóhanna M. Hjartardóttir, sviðsstjóri fjölskyldu og fræðslusviðs, jmh@olfus.is, s. 480-3800

Geirlaug Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs – geirlaug@hagvangur.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?