Stækkun almenningssamgöngukerfis Suðurlands

Aukið hefur verið við þjónustu við íbúa á Suðurlandi hvað almenningssamgöngur varðar. Bæst hafa við ferðir á milli Selfoss og Þorlákshafnar auk ferða til Hveragerðis og eru íbúar hvattir til að nýta þessa þjónustu.

Síðastliðinn þriðjudag var undirritaður samningur á milli SASS og Hópbíla hf.  um viðbótarakstur almenningsvagna á Suðurlandi. Undirritun samningsins. Mynd frá www.dfs.is Um er að ræða viðbót við núverandi kerfi sem grundvallast á samningi við Fjölbrautaskóla Suðurlands um akstur með nemendur skólans, samningi við Sveitarfélagið Árborg um akstur á milli þéttbýlisstaða sveitarfélagsins og samningum við Sveitarfélagið Ölfus og sveitarfélögin í Rangárvallasýslu.

Viðbæturnar felast í því að eftirtaldar leiðir verða eknar tvisvar á dag fram og til baka  allan ársins hring:  Selfoss – Þorlákshöfn, Selfoss – Flúðir, Selfoss – Reykholt og Selfoss – Hella – Hvolsvöllur.   Ferðirnar verða opnar öllum bæði nemendum sem öðrum. Ferðir á milli þéttbýlisstaðanna í Árborg verða með svipuðu sniðu og verið hefur.  Núverandi leiðir  verða óbreyttar nema að ferðirnar í uppsveitir Árnessýslu  verða fastar ferðir og pöntunarþjónustan því lögð af.

Ávinningurinn af þessari aukningu er að héðan í frá getur fólk sótt vinnu með almenningsvögnum á þessu svæði því umræddar leiðir verða eknar  á  morgnana og síðdegis auk þess sem möguleikar fólks í uppsveitum og Rangárvallasýslu aukast á því að komast til og frá höfuðborgarsvæðinu með tengingu við vagnana sem aka á milli Selfoss og Reykjavíkur.   Þá mun þjónusta við nemendur skólans verða  aukin frá því sem verið hefur því ferðapassi þeirra mun gilda hvar sem er í almenningssamgöngukerfinu, m.a. á höfuðborgarsvæðinu, og geta þeir því nýtt hann um helgar og í skólafríum.

Aksturinn hefst 20. ágúst nk.  Upplýsingar um  ferðir og tímasetningar þeirra er að finna á http://www.straeto.is/

Fréttin birtist á fréttavef Dagskrárinnar: www.dfs.is

Myndin fengin af vef dfs.is með góðfúslegu leyfi.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?