Stærsti humar sem veiðst hefur á Íslandi

Jón á Hofi landar humri
Jón á Hofi landar humri
Skipið Jón á Hofi, sem er í eigu Rammans í Þorlákshöfn, landaði stærsta humri sem veiðst og hefur við Íslandsstrendur síðastliðinn fimmtudag.

Skipið Jón á Hofi, sem er í eigu Rammans í Þorlákshöfn, landaði stærsta humri sem veiðst hefur við Íslandsstrendur síðastliðinn fimmtudag.

Humarinn var veiddur í Selvognum. Hausinn er mældur frá augntóftum aftur að hala. Búkurinn mældist 88 mm en fyrra met var 81 mm humar sem veiddist fyrir u.þ.b. 10 árum.  Lengdin á humrinum í heild er hálfur meter og hann vegur 490 grömm samkvæmt frétt frá Rammanum.

„Íslandsmetið“ var staðfest af starfsmanni Hafró í Þorlákshöfn, en hann skoðar flestar landanir af humarbátunum sem landa þar.

Sjá nánar: http://www.rammi.is/islenska/frettir/

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?