Starfsdagur í leik- og grunnskóla 16.mars

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið og ýmsar skorður settar varðandi samskipti nemenda. Um er að ræða tímabilið frá 16. mars til 12. apríl. Markmið með takmörkun skólastarfs er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 farsóttar.

Starfsdagur verður mánudaginn 16. mars bæði í grunnskólanum og leikskólanum og nemendur verða því heima þann dag. Starfsdaginn  nýta stjórnendur og starfsmenn skólanna til þess að skipuleggja skólastarfið í takti við þær skorður sem takmarkanirnar setja. Frístund verður einnig lokuð þennan dag.

Kennsla hefst að nýju þriðjudaginn 17.mars og munu skólastjórnendur senda út nánari upplýsingar um tilhögun skólastarfs til foreldra í tölvupósti og setja inn fréttir á  heimasíður skólanna.  Foreldarar eru hvattir til að fylgjast vel með.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?