Styrkumsóknir í lista- og menningarsjóð Ölfuss

Markaðs- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.

Markmið sjóðsins er:

- Að efla hverskonar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu.
- Að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði lista- og menningarmála er tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.

Upplýsingar um reglur sjóðsins er að finna á vef sveitarfélagsins

Hægt er að nálgast umsóknarblöð á vef sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til 8.nóvember 2019 og skulu umsóknir berast til sviðsstjóra fjármála-, stjórnsýslu- og menningarsviðs í gegnum umsóknareyðublaðið á vef sveitarfélagsins eða í tölvupósti sandradis@olfus.is

Nánari upplýsingar veitir Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri í síma 480 3808 eða tölvupósti sandradis@olfus.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?