Námskeiðshaldari: Sveitarfélagið Ölfus
Verkefnastjóri: Indíana Rós Ægisdóttir
Námskeiðin munu hafa aðsetur í grunnskólanum.
Aldur: Börn fædd 2011-2014
Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá sem einkennist m.a. af útiveru, hreyfingu, lýðheilsu, íþróttaleikum, listgreinum og margt fleira.
Boðið er uppá heilan dag eða hálfan dag, annaðhvort fyrir eða eftir hádegi.
Kr. 8500,- frá kl. 08:00 til 16:00.
Kr. 4500,- frá kl. 08:00 til 12:00 eða 12:00 til 16:00.
Systkinaafsláttur: 2. barn 30%, 3. barn 50%
Athugið að börnin þurfa að koma með nesti yfir daginn.