Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Ölfusi

Merki Sveitarfélagsins Ölfuss
Merki Sveitarfélagsins Ölfuss

Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi:

Umsóknareyðublöð eru  á eftirfarandi slóð: Umsóknareyðublað

Sendið umsókn á david@olfus.is eða skilið umsókn inn rafrænt. 

Umsóknarfrestur er til og með föstudaginn 17.03.2023

Störf hjá vinnuskólanum:

Yfirflokkstjóri vinnuskólans

  • Yfirumsjón með flokkstjórum og vinnuhópum vinnuskólans ásamt umhverfisstjóra.
  • Sér um daglegan rekstur vinnuskóla
  • Almenn garðyrkjustörf o.fl. tengt vinnuskólanum (almenn garðyrkjustörf og umhirðu á stofnunum og opnum svæðum).
  • Frumkvæði og góð mannleg samskipti.
  • Æskilegt að vera með bílpróf.
  • Krafist er stundvísi, ástundunar og dugnaðar.
  • Lágmarksaldur 22 ára.

Flokkstjórar vinnuskólans

  • Umsjón með vinnuhóp í vinnuskólanum.
  • Almenn garðyrkjustörf o.fl. tengt vinnuskólanum (almenn garðyrkjustörf og umhirðu á stofnunum og opnum svæðum).
  • Frumkvæði og góð mannleg samskipti.
  • Æskilegt að vera með bílpróf.
  • Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar.
  • Lágmarksaldur 20 ára.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOSS og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Halldórsson umhverfisstjóri í síma 899 0011 eða david@olfus.is

 

Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Ölfusi

Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi:

Umsóknareyðublöð eru á bæjarskrifstofum eða á eftirfarandi slóð: Umsóknareyðublað

Sendið umsókn á david@olfus.is eða skilið inn umsókn inn rafrænt.

Umsóknarfrestur er til og með föstudaginn 17.03.2023

Störf hjá þjónustumiðstöð:

Verkstjóri yfir sumarstarfsmönnum

  • Umsjón með starfsmönnum sláttuhóps.
  • Skipulagning og ábyrgð á garðslætti og hirðingu á opnum svæðum í samráði við umhverfisstjóra.
  • Viðkomandi þarf að hafa bílpróf.
  • Vinnuvélaréttindi kostur.
  • Reynsla af viðhaldi véla og vinnuvélaréttindi æskileg.
  • Krafist er stundvísi, ástundunar, dugnaðar.
  • Lágmarksaldur 22 ára.

Sumarstarfsfólk í þjónustumiðstöð

  • Vinna við almenn garðyrkjustörf, garðslátt og hirðingu á opnum svæðum ásamt ýmsum verkefnum Þjónustumiðstöðvar.
  • Krafist er stundvísi, ástundunar og dugnaðar.
  • Frumkvæði og góð mannleg samskipti.
  • Bílpróf og vinnuvélaréttindi kostur.
  • Lágmarksaldur 17 ára.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi FOSS og Samband íslenskra sveitarfélaga.

 

Nánari upplýsingar veitir Davíð Halldórsson umhverfisstjóri í síma 899 0011 eða david@olfus.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?