Lóðin sem um ræðir er um 8.500 m² að stærð og er sú lóð sem Litla kaffistofan stendur á. Lóðin er staðsett við þjóðveg nr. 1, í nágrenni við Hellisheiði, Jósepsdal og Bolaöldur, innan afréttar í Ölfusi.
Fasteign á lóðinni er í einkaeigu. Aðrir umsækjendur en núverandi eigendur fasteignarinnar verða því að gera ráð fyrir að þurfa að leysa til sín mannvirki, ef til úthlutunar lóðar eða leyfis til landnýtingar kemur.
Svæðið er í þjóðlendu. Umrætt svæði er þjóðlenda samkvæmt úrskurði óbyggðanefndar og dómi Hæstaréttar Íslands. Í ljósi þess þarf leyfi Sveitarfélagsins Ölfuss til að nýta land og landsréttindi á svæðinu, sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlenda og afrétta. Jafnframt þarf samþykki forsætisráðuneytisins þar sem fyrirhuguð nýting er til lengri tíma en eins árs, sbr. 2. mgr. 3. gr. sömu laga.
Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið. Öll nýting lands, breytingar á starfsemi eða mannvirkjum eru háðar samþykki sveitarfélagsins og annarra viðeigandi stjórnvalda, eftir því sem við á. Við úthlutun verða innheimt úthlutunargjöld.
Við mat á umsóknum verður einkum litið til eftirfarandi skilmála, án þess að röðun þeirra gefi til kynna vægi einstakra þátta:
- lýsingar á fyrirhugaðri nýtingu lóðarinnar og hvernig starfsemin fellur að umhverfi og eðli svæðisins
- hvernig frágangi mannvirkja verður háttað, með áherslu á að þau falli vel að landslagi og umhverfi
- hvernig umsækjandi hyggst tryggja að land og nánasta umhverfi spillist ekki vegna umferðar eða starfsemi
Áhugasamir aðilar eru beðnir um að senda tillögu að nýtingu lóðarinnar til Sveitarfélagsins Ölfuss eigi síðar en 28. febrúar 2026