Sveitarfélagið Ölfus auglýsir eftir eigendum sex gáma

Sveitarfélagið Ölfus auglýsir eftir eigendum sex gáma sem standa á geymslusvæði sveitarfélagsins við Hafnarskeið í Þorlákshöfn. Um er að ræða fjóra 20 feta gáma og tvo 40 feta gáma. Hafi enginn gefið sig fram fyrir 19. nóvember nk. verða gámarnir ásamt innihaldi þeirra fjarlægðir og fargað.

 

 

 

 

 

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?