Sveitarfélagið Ölfus auglýsir lóðir við Vesturberg, í Þorlákshöfn

Hverfið er sjálfstæð heild, vestur af gróinni byggð. Það mótast af ósnortinni náttúru, fjallasýn og nálægð við hafið, með góðri tengingu við Selvogsbraut sem er ein af stofnbrautum bæjarins. Samhliða uppbyggingu verður ráðist í framkvæmdir við 4 til 6 deilda leikskóla í hverfinu sem skapar því umgjörð nærumhverfis fyrir barnafólk. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og íþróttir.

Vesturberg er eitt af mörgum skrefum sveitarfélagsins í átt að frekari uppbyggingu og er auglýst í framhaldi af mikilli ásókn í fasteignir og byggingalóðir. Um er að ræða fyrsta áfanga nýrrar byggðar þar sem þrettán einbýlishúslóðir, 18 raðhúslóðir (64 íbúðir) og fjórar lóðir fyrir smáfjölbýli (26 íbúðir) fara í úthlutun. Alls er því um 103 íbúðaeiningar að ræða.

Sveitarfélagið Ölfus er ört vaxandi samfélag sem nýtur í senn styrks landsbyggðar og nálægðar við höfuðborgarsvæðið. Uppbygging atvinnulífs er þar hröð og mannlíf blómlegt. Íbúar í sveitarfélaginu hafa mælst þeir ánægðustu á landinu öllu enda þjónusta og náttúrugæði óviðjafnanleg.

Undirbúningur gatnagerðar er hafinn og verður gatnagerð lokið á vordögum. Úthlutun lóða fer fram skv. úthlutunarreglum sveitarfélagsins sem má lesa hér og greiðsla gatnagerðargjalda verður skv. gildandi gjaldskrá við afhendingu lóða.

 

Umsóknafrestur er til 2. desember og úthlutun verður 9. desember. Búast má við að lóðirnar verði tilbúnar til framkvæmda á vordögum, jafnvel eitthvað fyrr.

 

Umsóknir fara fram í gegnum íbúa- og þjónustugátt sveitarfélagsins sem finna má á heimasíðu Ölfuss www.olfus.is eða [hér] .

Gjald er tekið fyrir hverja umsókn.

 

Hér má finna deiliskipulagsuppdrátt  (hér) og greinagerð deiliskipulags [hér].

 

Hér má svo finna myndband sem veitir innsýn í skipulag hverfisins: https://youtu.be/TgL2G5lilcM

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?