Rafbíll í þjónustu Sveitarfélagsins Ölfuss

Sigrún Theódórsdóttir forstöðumaður heimaþjónustu
Sigrún Theódórsdóttir forstöðumaður heimaþjónustu

 

Sveitarfélagið Ölfus festi í dag  kaup á  sínum fyrsta rafbíl.
Um er að ræða bifreið af gerðinni Kia Soul sem notuð verður við heimaþjónustu fyrir aldraða í sveitarfélaginu og er drægni bifreiðarinnar á fullri hleðslu tæplega 200 km.
Er þetta hluti af umhverfisstefnu sveitarfélagins að nýta umhverfisvænni kosti eins og mögulegt er í rekstri sínum.
Ekki er vafi á því að þessi nýja bifreið mun nýtast vel í framtíðinni í þjónustu við elstu íbúa sveitarfélagsins og fer vel á því að fyrsta skrefið í rafbílvæðingu þess sé nýtt í þeirra þágu.
Á myndinni er einnig Sigrún Theódórsdóttir forstöðumaður heimaþjónustu ánægð með nýja farartækið.

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?