Sveitarfélagið Ölfus hvetur íbúa og fyrirtæki til að vera plastlaus í september

Í september á hverju ári fer fram árverkniátakið Plastlaus september. Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Hver Íslendingur skilur eftir sig um 40 kíló af úrgangi umbúðarplasts á ári. Sveitarfélagið Ölfus tekur þátt í átakinu og vonar að íbúar og fyrirtæki taki vel í það með virkri þátttöku.

Á heimasíðunni plastlausseptember.is er hægt að finna ýmsan fróðleik og ráð til þess að minnka plastnotkun.

Plastlaus september er hluti af áhersluverkefni SASS sem nefnist umhverfis Suðurland. Verkefnið var samþykkt í byrjun árs 2018 og var mótað út frá ályktun sem sett var saman á ársþingi SASS 2017. Verkefnið er sameiginlegt átak sveitarfélaganna fimmtán á Suðurlandi og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem gengur út á öflugt hreinsunarátak þar sem íbúar, fyrirtæki og sveitarfélög í landshlutanum eru hvött til enn meiri flokkunar og endurvinnslu en nú er, auk þess sem ráðist verður í almenna tiltekt í landshlutanum í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands.

Átakið mun standa fram á næsta ár með ýmsum viðburðum og og ákveðnu þema fyrir hvern mánuð sem verður kynnt nánar þegar nær dregur. 

Á meðan þessum viðburðum stendur er um að gera að vera dugleg að segja frá og birta myndir af því sem er að gerast og nota myllumerkið #umhverfissuðurland.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?