Sveitarfélagið undirritar samning við Lýsi hf.

Sveitarfélagið undirritar samning við Lýsi hf.

Þann 26. október síðastliðinn skrifuðu Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss og Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis hf. undir samning vegna tímabundins leyfis fyrir fiskþurrkunarverksmiðju í Þorlákshöfn.

Með þessum samningi samþykkti Lýsi hf. að taka ákvörðun fyrir lok mars 2017 hvort það eigi að flytja starfsemina á nýtt iðnaðarsvæði vestan Þorlákshafnar eða loka verksmiðjunni án frekari uppbyggingar í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Lyktin sem dreifist um bæinn vegna fiskþurrkunar hefur ekki farið fram hjá neinum og veldur mörgum íbúum Þorlákshafnar ama. Forsvarsmenn sveitarfélagsins hafa leitað leiða til þess að finna lausn á þessum vanda og nú er hún í sjónmáli.

Þann 26. október síðastliðinn skrifuðu Gunnsteinn R. Ómarsson, bæjarstjóri Ölfuss og Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis hf. undir samning vegna tímabundins leyfis fyrir fiskþurrkunarverksmiðju í Þorlákshöfn.

Með þessum samningi samþykkti Lýsi hf. að taka ákvörðun fyrir lok mars 2017 hvort það eigi að flytja starfsemina á nýtt iðnaðarsvæði vestan Þorlákshafnar eða loka verksmiðjunni án frekari uppbyggingar í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Í samningnum kveður á að ef ákveðið verður að loka verksmiðjunni eða ákvörðun um flutning liggur ekki fyrir í lok mars 2017 skal Lýsi hf. loka verksmiðjunni eigi síðar en fyrir lok maí 2017. Ef ákveðið verður að flytja starfsemina á nýjan stað vestan Þorlákshafnar verði starfsemi að Unubakka 26 stöðvuð eigi síðar en fyrir lok júní 2018.

Lýsi hf. hefur leyfi til þess að framleiða 40 tonn af hráefni á sólarhring að Unubakka 26 og engin þurrkstarfsemi fer fram í júlí og ágúst en þau ákvæði er einnig að finna í starfsleyfi verksmiðjunnar sem gildir út júní árið 2018.

Ef Lýsi hf. ákveður að flytja starfsemina á nýjan stað mun sveitarfélagið sjá um gatnagerð að viðkomandi lóð, stofnlögn fráveitu og heimila borun eftir köldu vatni á lóðinni. Einnig samþykkir sveitarfélagið að heildargjaldtaka vegna þátta sem snúa að lóðinni verði ekki umfram 20 m.kr.  

Sumarið 2015 voru áform uppi um að hefja framkvæmdir við nýja verksmiðju í byrjun árs 2016 en vegna erfiðs efnahagsástands í Nígeríu var það sett á bið. Enn ríkir mikil óvissa um framtíðarhorfur markaðarins í Nígeríu og því var Lýsi hf. gefinn frestur til loka mars 2017 að taka ákvörðun um hvort verksmiðjunni verði lokað eða hún flutt á nýjan stað.

Forsvarsmenn sveitarfélagsins eru bjartsýnir og vona að starfsemi Lýsis hf. verði flutt á nýjan stað vestan Þorlákshafnar þar sem hún geti vaxið og dafnað án þess að valda bæjarbúum óþægindum. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?