Sýning í Galleríinu undir stiganum: "50 ára saga Sigurbjargar" 

Syningaropnun 5
Syningaropnun 5
Sýning í Galleríinu undir stiganum "50 ára saga Sigurbjargar" 
Sýning Sigurbjargar Eyjólfsdóttur opnaði formlega í gær í Galleríinu undir stiganum, fimmtudaginn 8. september. Sýningin ber heitið „50 ára saga Sigurbjargar“ og þar sýnir hún ýmsa muni sem hún hefur gert á 50 ára ferli sínum.

Sýning Sigurbjargar Eyjólfsdóttur opnaði formlega í gær í Galleríinu undir stiganum, fimmtudaginn 8. september. Sýningin ber heitið „50 ára saga Sigurbjargar“ og þar sýnir hún ýmsa muni sem hún hefur gert á 50 ára ferli sínum.

Sigurbjörg er fædd árið 1944 og hefur tekið þátt í ótal handverkssýningum. Hún lærði blómaskreytingar hjá Ringelberg í Rósinni, Vesturveri. Þar lærði hún „að búa til allt úr engu“. Hún lærði módelteikningu í myndlistarskóla og á meðan börnin hennar voru lítil málaði hún vöggusett og skírnarkjóla með taulitum.  Þá eru ófá fermingarkertin sem hún hefur málað með nöfnum fermingarbarna. Sigurbjörg stundaði nám í Handmenntaskóla Íslands á árunum 1981-1984 og var ein af stofnendum Myndlistarfélags Árnesinga.  Hún hefur sótt ótal námskeið hjá félaginu og tekið þátt í samsýningum þess.

Sigurbjörg rak verslunina Föndur og gjafir (áður Föndurskúrinn) á Selfossi í níu ár og fór þá að vinna mikið með leir.  Hún býr nú í Selvoginum og sækir myndefnið mikið í umhverfi sitt, Strandarkirkju og sögurnar sem tengjast staðnum.

Sýningin mun standa út september og er opin á opnunartíma Bókasafns Ölfuss.
Við hvetjum sem flesta til að koma við og skoða sýninguna.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?