Takk fyrir frábæra HAMINGJU

Frábær þátttaka og fjölmenni skapaði einstaka stemningu og gerði Hamingjuna við hafið að þeirri glæs…
Frábær þátttaka og fjölmenni skapaði einstaka stemningu og gerði Hamingjuna við hafið að þeirri glæsilegu fjölskylduhátíð sem hún er.

Kærar þakkir til allra íbúa og gesta sem lögðu leið sína á hátíðina. Frábær þátttaka og fjölmenni skapaði einstaka stemningu og gerði Hamingjuna við hafið að glæsilegri fjölskylduhátíð. Samheldnin, samvinnan og krafturinn í samfélaginu gerir bæjarhátíðina okkar að þeirri einstöku hátíð sem hún er. Takk fyrir að gera þessa helgi svona eftirminnilega.

Sérstakar þakkir fær viðburðastjóri hátíðarinnar, Sigurgeir Skafti Flosason, fyrir einstaka vinnu, faglegt skipulag og afar gott samstarf við undirbúning og framkvæmd. Slíkt leggur grunninn að vel heppnaðri hátíð. Einnig fá allir þeir sem komu fram á hátíðinni og glöddu gesti með fjölbreyttri dagskrá, tónlist, skemmtun og afþreyingu, miklar þakkir fyrir. Án ykkar væri hátíðin ekki sú sama.

Að lokum færum við öllum þeim sem lögðu hönd á plóg innilegar þakkir. Þar á meðal eru fjölmörg félög í Ölfusi, sjálfboðaliðar, fyrirtæki og velunnarar sem lögðu sitt af mörkum. Framlag ykkar skiptir sköpum og er ómetanlegt.

Sjá nánari umfjöllun um hátíðina á fréttavefnum Hamingjuhöfn og myndir í Myndasafni Tedda Owen

Nú tekur við undirbúningur fyrir næstu Hamingju við hafið. Við hvetjum íbúa og aðra gesti sem vilja leggja sitt af mörkum að senda okkur ábendingar til jmh@olfus.is , hugmyndir og tillögur að því sem vel tókst eða mætti gera enn betur. Slíkar ábendingar verða mikilvægt innlegg í þá vinnu sem fram undan er í haust við skipulagningu og undirbúning næstu hátíðar. 

Við hlökkum nú þegar til að taka á móti ykkur aftur á Hamingjunni við hafið að ári!

Saman gerum við Hamingjuna við hafið enn betri með hverju árinu

Fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss
Jóhanna M. Hjartardóttir
sviðsstjóri fjölskyldu og fræðslusviðs

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?