Textílkennari óskast til starfa

Grunnskólinn í Þorlákshöfn auglýsir eftir textílkennara frá og með 1. ágúst 2019, hlutastarf kemur til greina.

Í skólanum eru um 220 nemendur í 1. – 10. bekk og við hann starfar hæft og vel menntað starfsfólk. Stöðugleiki hefur verið í starfsmannahaldi sem endurspeglast í einkunnarorðum skólans: Vinátta, virðing og velgengni.  Skólinn er grænfánaskóli og vinnur að innleiðingu uppeldisstefnunnar Uppeldi til ábyrgðar ásamt áherslu á teymiskennslu. Sveitarfélagið Ölfus hefur sinnt skólamálum af miklum metnaði og er húsnæði skólans afar gott líkt og allur aðbúnaður. Gott samstarf er við leik- og tónlistarskóla á staðnum, en tónlistarskólinn er í húsnæði grunnskólans. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna samkvæmt stefnu skólans og stuðla að velferð nemenda.
  • Að mæta fjölbreyttum þörfum allra nemenda.
  • Að vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Að kynnast nemendum sínum sem best, foreldrum þeirra og aðstæðum.
  • Að stuðla að farsælu samstarfi heimila og skóla.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Faglegur metnaður og skipulagshæfni.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum og unglingum.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands (FG). Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí 2019 og skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað rafrænt í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins https://www.olfus.is/is/moya/formbuilder/index/index/umsokn-um-starf.

Nánari upplýsingar má nálgast hjá skólastjóra Ólínu Þorleifsdóttur, olina@olfus.is sími 861-1732 eða aðstoðarskólastjóra Jónínu Magnúsdóttur, jonina@olfus.is sími 845-0467.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?