#Þorlákshöfn frá sólarupprás til sólseturs, opnun sýningar í Galleríinu undir stiganum.

#Þorlákshöfn frá sólarupprás til sólseturs
#Thorlakshofn od wschodu do zachodu słońca

Það er athyglisvert að sjá landið okkar með augum aðfluttra, ekki síst okkar eigin heimahaga en það er einmitt það sem verður boðið upp á á þessari ljósmyndasýningu.
Dorota Kowalska er frá Gdansk í Póllandi en hefur verið búsett í Þorlákshöfn í u.þ.b. 12 ár. Hún hefur mikla ástríðu fyrir ljósmyndun og má sjá nokkrar mynda hennar á þessari sýningu. Þær eru nánast allar teknar á síma, Samsung Galaxy 8 og voru upphaflega birtar á Instagram síðu Dorotu.
Myndirnar eru allar teknar í og við Þorlákshöfn.
Sýningin opnar fimmtudaginn 8. mars kl. 17 og stendur fram yfir mánaðarmót.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?