Þrettándabrenna verður á tjaldstæði við íþróttamiðstöð Þorlákshafnar, 6. janúar kl: 19:30 (ef veður leyfir).
Brennan er að sjálfsögðu í höndum brennumeistaranna í Kiwanis og sömuleiðis verður glæsileg flugeldasýning í boði Kiwanisklúbbsins Ölver.
Við munum fylgjast með veðri og uppfæra fréttina ef útlit er fyrir að veðrið verði með derring við okkur þetta kvöld.
Annars sjáumst við bara á laugardaginn kl: 19:30 vel klædd og tilbúin að kveðja jólin og taka á móti nýju ári.
Kær kveðja Anna Margrét Smáradóttir,
markaðs- og menningarfulltrúi.