Þrettándabrennu aflýst

Þar sem spáð er norðaustanátt, 15 m/sek um klukkan sex í kvöld, hefur verið ákveðið að aflýsa þrettándabrennu með tilheyrandi blysför og flugeldasýningu.

Þar sem spáð er norðaustanátt, 15 m/sek um klukkan sex í kvöld, hefur verið ákveðið að aflýsa þrettándabrennu með tilheyrandi blysför og flugeldasýningu.

Óskað hefur verið eftir því að flugeldasýningin verði í staðinn notuð á Hafnardögum, en bæjarhátíð Ölfuss verður að þessu sinni haldin í ágúst en ekki um Sjómannadagshelgina líkt og undanfarin ár.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?