Mánudaginn 20. apríl verður hafist handa við að sópa götur í Þorlákshöfn. Unnið verður að verkinu næstu daga.
Við biðjum íbúa vinsamlegast að færa kerrur, hjólhýsi, fellihýsi og bíla af götunum og inn í innkeyrslur á meðan sópun stendur yfir, svo hægt sé að vinna verkið hratt og vel.
Eitt af markmiðum sveitarfélagsins er að halda bænum okkar eins snyrtilegum og mögulegt er — eins og verið hefur. Við hvetjum alla íbúa til að taka þátt í því með okkur og stuðla að fallegu og hreinu umhverfi.
Þökkum fyrir gott samstarf.