Tilkynning til íbúa – hreinsun eftir áramótin

Mikið rusl fellur til um áramót þegar tonnum af flugeldum er skotið á loft. Nokkuð mikið er um það að tómir flugeldakassar, spýtur og prik liggi á víð og dreif um bæinn í upphafi árs og biðlum við til íbúa og fyrirtækja á svæðinu að huga að nærumhverfi sínu og taka til eftir áramótagleðina.

Það er eins í þessu eins og svo mörgu öðru að margar hendur vinna létt verk. Við hvetjum íbúa og kaupendur flugelda að sýna gott fordæmi, hreinsa upp eftir sig og koma rusli í förgun. Rusl eftir flugelda skal flutt á gámasvæðið. Varað er við því að leifum af flugeldum sé hent í ruslatunnur öryggisins vegna. Flugeldarusl á að skila sér beint í almennt sorp á gámasvæðinu, nema ósprungnir flugeldar – þeir fara í spilliefnagáminn.

Ef sem flestir gefa sér tíma í það á nýja árinu að fegra nærumhverfi sitt þá náum við í sameiningu að koma bænum í samt horf og halda honum áfram hreinum og fínum.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?