Umhverfisverðlaun Ölfuss

Á myndinni eru Eiríkur Vignir Pálsson formaður Skipulags- byggingar- og umhverfisnefndar Ölfuss, Dag…
Á myndinni eru Eiríkur Vignir Pálsson formaður Skipulags- byggingar- og umhverfisnefndar Ölfuss, Dagný Erlendsdóttir leikskólastjóri og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Magnús Hlynur Hreiðarsson tók myndina.

Á sumardaginn fyrsta þann 25. april sl. voru umhverfisverðlaun Ölfuss veitt við hátíðlega athöfn á Landbúnaðarháskólanum að Reykjum í Ölfusi.

Verðlaunin eru veitt þeim sem sýnt hefur einstakt framtak á sviði umhverfismála. Við valið er horft til þeirra fyrirtækja, stofnana eða einstaklinga sem láta sig umhverfismál varða, hafa mótað sér umhverfisstefnu eða á annan hátt verið til fyrirmyndar hvað varðar umhverfismál.

Tilkoma þessara verðlauna eru að með þeim megi vonandi auka á umhverfisvitund íbúa og fyrirtækja og hvetja þau til að láta sig umhverfismál varða.

Það er skipulags-, byggingar- og umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Ölfus sem velur þann sem hlýtur verðlaunin ár hvert.

Leikskólinn Bergheimar fær umhverfisverðlaun Ölfus 2019.  Verðlaunin eru veitt fyrir  að móta sterka umhverfisvitund okkar mikilvægasta fólks.

Meðal umhverfisverkefna og áhersla leikskólans er.

  • Leikskólinn hefur nú fengið tvo grænfána og vinnur af þeim þriðja en grænafánaverkefni hefur víðtæk áhrif og taka skólar ábyrga afstöðu í málum sem snerta umhverfið. Með því að innleiða raunhæfar aðgerðir og vinna á markvissan hátt að sjálfbærni.
  • Virkjar nemendur með raunverulegri umhverfisþáttöku s.s. að hreinsa umhverfi í bæjarfélaginu, láta þau vinna sjálf að endurvinnslu og flokkun svo eitthvað sé nefnt.
  • Auk þess er umhverfi og lóð leikskólans til fyrirmyndar og öðrum til eftirbreytni.

Starfsfólki Leikskólans er þakkað þeirra frumkvæði og vinna sem mun án efa skila sér út í samfélag framtíðar öflugum einstaklingum á sviði umhverfismála. 

Við mættum öll hafa umhverfissáttmála Leikskólans í huga endar er hann einlægur og gagnlegur.

                            „ Okkur þykir vænt um jörðina og okkur sjálf „

Leikskólastjórinn Dagný Erlendsdóttir  veitti verðlaununum móttöku.  Lilja Alfreðsdóttir mennta- og mennigarmálaráðherra afhenti þau.

Verðlaunagripina gerði Dagný Magnúsdóttir glerlistakona og eigandi kaffihússins/glerlistasmiðjunnar Hendur í Höfn í Þorlákshöfn.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?