Umhverfisverðlaun Ölfuss 2011

Umhverfisverðlaun_2011-002
Umhverfisverðlaun_2011-002

Föstudaginn 2. september voru Umhverfisverðlaun Ölfus veitt fyrir fallegustu garðana í sveitarfélaginu, annars vegar í þéttbýli og hins vegar í dreifbýli. Í þéttbýlinu var fallegasti garðurinn valinn Básahraun 17 og í dreifbýlinu þótti Friðarminni fallegasti garðurinn.

 

Umhverfisverðlaun Ölfuss 2011

 

Föstudaginn 2. september voru Umhverfisverðlaun Ölfus veitt fyrir fallegustu garðana í sveitarfélaginu, annars vegar í þéttbýli og hins vegar í dreifbýli.

Fallegasti garðurinn í þéttbýlinu þótti Básahraun 17 en eigendur hans eru Jóna Guðlaugsdóttir og Gísli Guðnason. Umsögn nefndarinnar um garðinn var eftirfarandi: Garðurinn í þéttbýlinu er vel hirtur, með fjölbreyttu tegundaúrvali og góðri uppbyggingu beða, notagildi er ágætt, skipulagið gott með góðu flæði. Aðkoman er falleg og þegar gengið er að húsinu heyrist í vatni og eykur það enn áhrifin, vekur forvitni  á að kíkja inn í garðinn.

Fallegasti garðurinn í dreifbýlinu þótti Friðarminni en eigendur hans eru Guðmundur Guðjónsson og Jakob Jakobsson. Og hlaut hann eftirfarandi umsögn: Garðurinn í dreifbýlinu er sömuleiðis vel hirtur, það mætti segja að hann væri sambland að rómantískum garði með miklu notagildi og park.  Þegar gengið er um garðinn opnast sífellt ný rými með nýrri upplifun. Notagildi er mikið, bekkjum er komið fyrir víðsvegar um garðinn og hægt er að setjast niður njóta umhverfisins. Í garðinum er einnig veglegur matjurtagarður með öllum hugsanlegum tegundum grænmetis og kryddjurta.

Eigendur þessara garða hlutu í verðlaun gripi til eignar hannaða af handverkskonunni Dagnýju Magnúsdóttur, sem rekur fyrirtækið Hendur í Höfn í Þorlákshöfn, í gripina notaði hún gler, sand og grjót úr fjörunni við Þorlákshöfn.

Einnig hlutu eigendur garðana að Eyjahrauni 11, Knarrarbergi 3 og Hrísum viðkenningu fyrir vel hirta og fallega garða.

Valnefndin var skipuð fulltrúum frá LbhÍ, Kvenfélaginu Bergþóru Ölfusi, Skógræktarfélagi Ölfuss, formanni skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar auk umhverfisstjóra Ölfuss. 

Óskum við öllum þessum garðeigendum hjartanlega til hamingju með fallegu garðana sína.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?