Nú síðsumars var ánægjulegt að fá tækifæri til að veita umhverfisverðlaun Ölfuss fyrir snyrtilegustu garða sveitarfélagsins. Verðlaunin eru veitt þeim íbúum sem með alúð, metnaði og natni leggja sitt af mörkum til að fegra nærumhverfi sitt og skapa fallegt og aðlaðandi samfélag. Fallegir og vel hirtir garðar setja ekki aðeins svip á einstök heimili heldur hafa einnig áhrif á heildaryfirbragð sveitarfélagsins. Þeir endurspegla umhyggju íbúanna fyrir umhverfi sínu og sýna hversu miklu máli það skiptir að hlúa að þeim stað sem við köllum heim.
Við val á verðlaunagörðunum er horft til heildarmyndar, umhirðu, gróðurs, frágangs og þess hvernig garðurinn fellur að umhverfi sínu. Það er þó ekki síður metið hversu vel hefur tekist að skapa notalegt, fallegt og persónulegt útisvæði. Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með viðurkenninguna og þökkum þeim fyrir framlag sitt til fallegra og snyrtilegra Ölfuss.
Verðlaunin hafa þegar verið veitt og er niðurstaða nefndarinnar eftirfarandi :
Eyjahraun 10
Sigríður Stefánsdóttir og Ragnar Óskarsson
Viðurkenning fyrir fallegan og snyrtilegan garð.
Einstaklega fallegur og snyrtilegur garður þar sem umhirða lóðar og húss er öll til fyrirmyndar og eigendum til mikils sóma. Þau hafa byggt upp og ræktað garðinn frá upphafi eða frá 1980 þegar þau fluttu í húsið.

Básahraun 22
Guðbjörg M. Kristjánsdóttir og Þorvaldur Þór Garðarsson
Viðurkenning fyrir fallegan og snyrtilegan garð.
Mjög fallegur og snyrtilegur garður þar sem umhirða lóðar og húss er öll til fyrirmyndar og eigendum til mikils sóma. Skipulag garðsins er mjög flott og samspil timburs og hellulagnar skemmtilegt.

Skálafell
Dóróthea Róbertsdóttir og Richard Magnús Karlsson
Einstaklega fallegur og skemmtilegur garður í dreifbýlinu. Allt umhverfi hússins til fyrirmyndar, eigendum hefur tekist mjög vel að láta palla, stíga, og gróður flæða vel saman sem gefur einstaka upplifun á lóðinni.
