Umsagnir vegna friðlýsingar Brennisteinsfjalla

Tillaga að friðlýsingu háhitasvæði Brennisteinsfjalla: 68 Brennisteinsfjöll í verndarflokki rammaáætlunar – frestur til athugasemda

Umhverfisstofnun hefur nú lagt fram til kynningar tillögu að friðlýsingu háhitasvæðis Brennisteinsfjalla á Reykjanesi: 68 Brennisteinsfjöll á grundvelli flokkunar svæðisins í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar (rammaáætlunar), sbr. ályktun Alþingis nr. 13/141, frá 14. janúar 2013.

Kynningartími er þrír mánuðir eða til 30. október 2019.

Nánari upplýsingar á umhverfisstofnun.is. Athugasemdum skal skilað inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með bréfpósti; Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. 

Uppdráttur af friðlýsingu Brennisteinsfjalla.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?