Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 2026

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga er hafin.

Hægt er að kjósa á skrifstofu Sýslumannsins á Suðurlandi, sjá upplýsingar hér: https://island.is/s/syslumenn/kosning-utan-kjoerfundar en einnig er hægt að kjósa á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss frá og með 4.maí nk.

Opnunartími bæjarskrifstofu er frá kl. 9-16 mánud.-fimmtud. og frá kl. 9-13 á föstudögum. Kosningin á bæjarskrifstofunni stendur til 15.maí nk. og kjörfundur verður svo í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss, laugardaginn 16.maí frá kl. 9-22.

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.

Ábyrgð á atkvæði

Athygli er vakin á því að þeir kjósendur sem greiða atkvæði utan þess umdæmis sem þeir eru á kjörskrá, skulu sjálfir taka atkvæðisbréf sitt og koma því til kjörstjórnar þess sveitarfélags þar sem þeir eru á kjörskrá. Fram að kjördegi er kjörstjóra þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst og greiða almennt póstburðargjald undir sendinguna. Kjósandi ber að öðru leyti sjálfur kostnað af sendingu atkvæðisbréfsins.

Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar og leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á kosningar.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?