Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 2026

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaraktvæðagreiðslu þann 29.ágúst 2026.

Hægt er að kjósa á skrifstofu Sýslumannsins á Suðurlandi, Hörðuvöllum 1, Selfossi, sjá upplýsingar hér: https://island.is/s/syslumenn/kosning-utan-kjoerfundar en einnig er hægt að kjósa á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss frá og með 17.ágúst nk.

Opnunartími bæjarskrifstofu er frá kl. 9-16 mánud.-fimmtud. og frá kl. 9-13 á föstudögum. Kosningin á bæjarskrifstofunni stendur til 28.ágúst nk. og kjörfundur verður svo í Grunnskólanum í Þorlákshöfn, Egilsbraut 35, laugardaginn 29.ágúst frá kl. 9-22.

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.

Kosningarétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna eiga þeir kjósendur sem hafa kosningarétt til Alþingis og við forsetakjör, samkvæmt 3. gr. kosningalaga nr. 112/2021.

 

Ábyrgð á atkvæði

Athygli er vakin á því að þeir kjósendur sem greiða atkvæði utan þess umdæmis sem þeir eru á kjörskrá, skulu sjálfir taka atkvæðisbréf sitt og koma því til kjörstjórnar þess sveitarfélags þar sem þeir eru á kjörskrá. Fram að kjördegi er kjörstjóra þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst og greiða almennt póstburðargjald undir sendinguna. Kjósandi ber að öðru leyti sjálfur kostnað af sendingu atkvæðisbréfsins. Síðasti öruggi póstsendingardagur er 25.ágúst.

Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar og leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 | Upplýsingavefur landskjörstjórnar

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?