ÚTBOÐ - Ný vatnsrennibraut við sundlaug Þorlákshafnar

 Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tilboðum í:

„Ný vatnsrennibraut við sundlaug Þorlákshafnar“

Um er að ræða útboð um kaup á nýrri vatnsrennibraut fyrir sundlaug Þorlákshafnar. Innifalið í tilboði skulu vera
2 vatnsrennibrautir, turn, lokað stigahúsi, dælur ásamt vatnslögnum frá dælum að rennibrautum, allar raflagnir
frá dælum og í turni, hlóð og ljósabúnaður fyrir turn, öll hönnun á burðarvirki og lögnum fyrir rennibrautir, uppsetning og annað það sem þarf til að skila full unnu verki skv. útboðslýsingu.

Verklok eru 1. september 2022.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér: https://olfus.ajoursystem.is/Tender/DirectLink/
c4fd8ec2-0bf8-4885-a087-c5ff8423e956  

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour.

Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða
upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn
póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar.
Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og er hvattur til að hefja tímanlega vinnu við að skila því inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 11:00 föstudaginn 8. apríl 2022.

 


Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hættiá útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn.
Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent
opnunaryfirlit rafrænt.


Sveitarstjórn Ölfuss

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?