Sveitarfélagið Ölfus og Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið:
Vetrarþjónusta 2026-2028
Snjómokstur á tengivegum, héraðsvegum og heimreiðum í
Sveitarfélaginu Ölfusi.
Austur og Vesturhluti.
Verkið felst í snjómokstri á héraðsvegum, tengivegum og heimreiðum í Sveitarfélaginu Ölfusi 2026 - 2029. Um er
að ræða 2 útboð og skal þeim skilað inní sitt hvoru lagi.
Frávikstilboð eru ekki heimiluð.
Helstu kröfur til bjóðenda eru:
• Dráttarvél skal vera að lágmarki 150 hestöfl með hraðtengi, búin drifi á báðum ásum og keðjum.
• Snjófeykir skal vera að lágmarki 270 cm. m á breidd oggeta afkastað 1250-2500 m3 á klst.
• Viðbragðstími má ekki vera yfir 20 mín.
Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef sem er aðgengilegur hér:
https://olfus.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/31ccf506-2252-4c1b-92dd-e8f2cf0924d2
frá og með kl. 13:00 miðvikudeginum 4. nóvember 2026.
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour.
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða
upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn
póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skuluí þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar.
Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim
inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 14:00 miðvikudaginn 11. nóvember 2026.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn.
Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent
opnunaryfirlit rafrænt.
Umhverfisstjóri Ölfuss.