Consensa fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss óskar eftir tilboðum í framleiðslu og afhendingu á máltíðum fyrir fjórar stofnanir sveitarfélagsins. Um er að ræða framleiðslu og afhendingu á skólamáltíðum fyrir nemendur og starfsfólk skólastofnanna og máltíðum fyrir þjónustuþega og starfsmenn stuðningsþjónustu sveitarfélagsins samkvæmt skilmálum útboðslýsingar.
Hægt er að sækja öll útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum https://tendsign.is/
Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en kl. 12:00 þann 16. júní 2025.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is/utbod/auglyst-utbod