Útboð - Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tilboðum í verkið: Hafnarsvæði - gatnagerð og veitur

Verklok eru 1. desember 2023.


Verkið felur í sér gerð á nýjum götum, Norðurbakka, Hafnarveg og Hafnarbakka, á og við hafnarsvæðið í Þorlákshöfn.


Verktaki skal jarðvegsskipta götur og gangstéttar samkvæmt kennisniðum og leggja styrktarlag.
Verktaki skal einnig leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, ljósleiðaralagnir, ljósastauralagnir, setja upp ljósastaura og aðstoða við lagningu annarra veitna.


Helstu magntölur eru:

Gröftur
Styrktarlag og fylling í lagnaskurði
Fleygun
Fráveitulagnir
Vatnsveitulagnir
Ljósastaurar
Hitaveitulagnir
17.130 m³
6.035 m³
600 m³
760 m
740 m
22 stk
795 m

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér: https://olfus.ajoursystem.net/tender 

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.
Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar í síma 8555573. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.


Skilafrestur tilboðs er til
kl. 11:00 föstudaginn 21. apríl 2023.


Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.


Byggingarfulltrúinn í Þorlákshöfn.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?