Útboð - Sveitarfélagið Ölfus óskar eftir tilboðum í verkið: Vesturbakki - Yfirborðsfrágangur 2023

 Verkið er fólgið í yfirborðsfrágangi á Vesturbakka í Þorlákshöfn, þar með talið jöfnun núverandi fyllingar, leggja jöfnunarlag, malbikun gatna og gangstétta, steypu kantsteins og frágang gróðursvæða allt eins og fram kemur í verklýsingu og á teikningum.

Helstu magntölur eru:

Malbikun stíga og gatna
Jöfnunarlag stíga og gatna
Jöfnun núverandi fyllinga
Kantsteinn
5.200 m²
5.500 m²
3.600 m²
960 m

Verklok á malbikun gatna eru 31. júlí 2023 og endanleg verklok 30. september 2023.

Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér: https://olfus.ajoursystem.is/Tender/ 

Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.

Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar í síma 855-5573.

Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og er hvattur til að hefja tímanlega vinnu við að skila
því inn.


Skilafrestur tilboðs er til
kl. 11:00 þriðjudaginn 18. apríl 2023.


Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.


Byggingarfulltrúinn í Þorlákshöfn.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?