Védís Huld íþróttamaður Ölfuss 2025

Védís Huld hefur keppt í hestaíþróttum frá unga aldri og er hún bæði margverðlaunuð og afar reynd í …
Védís Huld hefur keppt í hestaíþróttum frá unga aldri og er hún bæði margverðlaunuð og afar reynd í sinni íþrótt.

Védís Huld Sigurðardóttir var um helgina útnefnd Íþróttamaður Ölfuss árið 2025. Védís Huld hefur keppt í hestaíþróttum frá unga aldri og er hún bæði margverðlaunuð og afar reynd í sinni íþrótt. Hún hefur skipað sér í fremstu röð ungra knapa í íslenskum hestaíþróttum og stendur jafnan fyrir sínu með mikilli fagmennsku og yfirvegun.

Hæfileikar hennar endurspeglast í þeirri ástríðu sem hún sýnir íþróttinni og er ánægjulegt að sjá einstakt samspil hennar og hestanna sem hún keppir á. Védís Huld átti frábært keppnisár 2025 og varð tvöfaldur Íslands- og heimsmeistari ungmenna, í fjórgangi og tölti, á Ísak frá Þjórsárbakka.

Í kjöri Íþróttamanns Ölfuss 2025 voru:

  • Arnar Þór Ingólfsson – frjálsar íþróttir
  • Bjarki Rúnar Jónínuson – knattspyrna
  • Emil Karel Einarsson – körfuknattleikur
  • Geir Sveinsson – rafíþróttir
  • Hulda Vaka Gísladóttir – hestaíþróttir
  • Jóhanna Ýr Ágústsdóttir – körfuknattleikur
  • Unnur Rós Ármannsdóttir – hestaíþróttir
  • Valgerður E. Hjaltested – bogfimi
  • Védís Huld Sigurðardóttir – hestaíþróttir

Aðrar viðurkenningar ársins

  • Knattspyrnufélagið Ægir varð deildarmeistari 2025 eftir sigur í 2. deild karla.
  • Deildarmeistarar í 2. deild kvenna í knattspyrnu:
    Anna Laufey Gestsdóttir, Auður Helga Halldórsdóttir, Írena Björk Gestsdóttir og Olga Lind Gestsdóttir.
  • Máni Mjölnir Guðbjartsson – Íslandsmeistari og landsliðsmaður í akstursíþróttum.
  • Emma Hrönn Hákonardóttir – leikmaður í U20 landsliði stúlkna í körfuknattleik.
  • Skarphéðinn Þorbergsson – leikmaður í U20 landsliði karla í körfuknattleik.
  • Styrmir Snær Þrastarson – leikmaður í A-landsliði karla í körfuknattleik.

Sveitarfélagið Ölfus sendir öllum íþróttamönnunum innilegar hamingjuóskir með frábæran árangur á árinu. Allir sem fengu viðurkenningar hafa sýnt mikinn metnað, dugnað og vilja til að ná árangri í sinni íþrótt og eru þannig sannarlega góðar fyrirmyndir fyrir aðra íþróttamenn og íbúa sveitarfélagsins.

Ungur básúnuleikar, Þorvarður Ragnar Þórarins lék í athöfninni
en hann er nemandi í Tónlistarskóla Árnesinga/Þorlákshafnardeild.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?