Veiðileyfi í Hlíðarvatni

Veidihus
Veidihus
Veiðileyfi í Hliðarvatni
Stangaveiðifélagið Árblik í Þorlákshöfn hefur til umráða 2 stangir í Hlíðarvatni í Selvogi. 

 

Stangaveiðifélagið Árblik í Þorlákshöfn hefur til umráða 2 stangir í Hlíðarvatni í Selvogi.  Þær eru ávallt seldar saman, sem tryggir að veiðimenn hafa húsið útaf fyrir sig.

Veiðimenn mega mæta að kvöldi fyrir keyptan veiðidag og hefja veiði kl. 20.00 sem lýkur svo að kveldi veiðidags kl 20.00.  Engin tímamörk eru á veiðinni þannig má veiða á nóttunni meðan bjart er ef menn vilja.

Veiðileyfi má nálgast á veida.is

Notalegt veiðihús fylgir með veiðileyfunum. Gistirými er fyrir 5 . Húsið er gaskynt og sólarsella sér um vatnið og ljós.  Frábær aðstaða fyrir unnendur útivistar og veiði.

Þorlákshafnarbúar og aðrir Ölfusingar!

Njótið útivistar og veiða í fallegu umhverfi í næsta nágrenni.

                                                                            Stangaveiðifélagið Árblik Þorlákshöfn.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?