Verðlaunahafar í jólaleikjum Ölfuss

Myndin er af vinningshöfum.
Myndin er af vinningshöfum.

Viðurkenningar voru veittar til þátttakanda sem báru sigur úr bítum í Snjalla jólaratleiknum sem var í Skrúðgarðinum í desember síðastliðnum. Það voru þrjú lið sem skipuðu efstu sætin og fengu þau púsluspil, spil og bók að gjöf fyrir góðan árangur.

Vinningsliðin skipuðu: Guðmundur Otri og Hólmfríður Fjóla, Bergþór Darri og Svala Margrét og þær Jana Marín, María Stefanía og Þuríður. Með þeim á myndinni er vinningshafinn Þuríður sem bjó til frumlegasta og skemmtilegasta Jólasokk Ölfuss 2022.

Við óskum vinningshöfum til hamingju.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?