Verkefnastjóri á menningarsviði

Sveitafélagið Ölfus auglýsti á dögunum eftir tímabundinni stöðu verkefnastjóra á menningarsviði, frá 15. maí - 15. ágúst 2019. Búið er að ráða Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur til þess að gegna þessari stöðu og á meðal verkefna hennar er undirbúningur og rekstur Hafnardaga, aðkoma að auknu framboði menningarefnis tengt sumardagskrá barna og ungmenna, undirbúningur fyrir móttöku gesta og ýmislegt fleira á sviði mannlífs og menningar í Sveitafélaginu. 

Ása Berglind er mörgum kunnug hér í Þorlákshöfn, enda ólst hún hér upp, er í Lúðrasveit Þorlákshafnar og stjórnar Tónum og Trix, tónlistarhóp eldri borgara. Ása er útskrifuð með BA próf úr Listaháskóla Íslands þar sem hún fór svo líka í gegnum MA nám í listkennslu og leggur stund á MA nám í Menningarstjórnun í Háskólanum á Bifröst þessi misserin. Hún hefur víðtæka reynslu í viðburðarhaldi og ýmiskonar stjórnunarstörfum. 
 
Ása Berglind hefur hafið störf nú þegar og er undirbúningur Hafnardaga því hafinn. 
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?