Verslunar- og þjónustuhúsnæði til leigu á Hafnarbergi 1

Sveitarfélagið Ölfus auglýsir til útleigu 41 m2 verslunar- og þjónustuhúsnæði á Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, jarðhæð í Ráðhúsi Ölfuss.

Húsnæðið hentar fyrir starfsemi sem skilgreind er á miðbæjarsvæði Þorlákshafnar, þ.e. blandaða verslunar- og þjónustustarfsemi, þó ekki til veitingasölu eða matvælaframleiðslu.

Áhugasamir hafi samband við Katrínu Ósk Sigurgeirsdóttur, markaðs- og menningarfulltrúa, með pósti á katrin@olfus.is fyrir 15. febrúar 2019.

Verslunar- og þjónusturými til leigu

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?