Gestir frá vinabæjum okkar í Svíþjóð og Finnlandi koma í heimsókn
Gestir frá vinabæjum í Svíþjóð og Finnlandi í heimsókn
Sveitarfélagið Ölfus tekur á móti gestum frá vinabæjum sínum í Vimmerby í Svíþjóð og Kauhava í Finnlandi á norrænu vinabæjamóti sem fram fer dagana 1.–5. júlí.
Markmið mótsins er að efla vináttu og samstarf milli sveitarfélaganna, skapa nýjar tengingar og gefa gestum tækifæri til að kynnast samfélaginu í Ölfusi.
Á meðan á dvölinni stendur fá gestir innsýn í fjölbreytt atvinnulíf, menningu og náttúru sveitarfélagsins. Á dagskránni eru meðal annars heimsóknir til fyrirtækja, skoðunarferð um Þorlákshöfn og dagsferðir um Suðurland.
Sveitarfélagið Ölfus vill færa Norræna félaginu í Ölfusi innilegar þakkir fyrir metnaðarfullan undirbúning og framkvæmd mótsins. Félagið sér um móttöku gestanna og á stóran þátt í að gera heimsóknina bæði ánægjulega og eftirminnilega.
Við bjóðum gesti okkar hjartanlega velkomna í Ölfus og hlökkum til ánægjulegrar samveru á næstu dögum.