Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss

Íþrótta – og tómstundanefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir  styrki úr Afreks – og styrktarsjóði  Sveitarfélagsins Ölfuss.

Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í  Sveitarfélaginu Ölfusi fjárhagslegan styrk  vegna æfinga og/eða keppni, og þannig skapa sem best tækifæri til að stunda íþrótt sína í heimabyggð eða annarstaðar eftir atvikum. Einnig eru veittir styrkir vegna menntunar þjálfara/leiðbeinenda.

Úthlutun styrkja fer fram í apríl nk.

Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Rafræn umsókn.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum  þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. apríl næstkomandi, merkt:

AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og tómstundafulltrúi,
í sima 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is

                                                                                           Sveitarfélagið Ölfus
                                                                                         Íþrótta – og tómstundanefnd

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?