Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss

Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss

Íþrótta – og æskulýðsnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir  styrki úr Afreks – og styrktarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss.

Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í  Sveitarfélaginu Ölfusi fjárhagslegan styrk  vegna æfinga og/eða keppni, og þannig skapa sem best tækifæri til að stunda íþrótt sína í heimabyggð eða annarstaðar eftir atvikum. Einnig eru veittir styrkir vegna menntunar þjálfara/leiðbeinenda.

Úthlutun styrkja fer fram í nóvember nk.

Hægt er að sækja um rafrænt hér en einnig er hægt að fá umsóknareyðublað á skrifstofu sveitarfélagsins Ölfuss.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. nóvember næstkomandi, merkt:

AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og æskulýðsfulltrúi,

í sima 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is

 

                                                                                           Sveitarfélagið Ölfus

                                                                                           Íþrótta – og æskulýðsnefnd

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?