Auglýsing á deiliskipulagstillögum

Eftirtaldar skipulagstillögur voru samþykktar til auglýsingar í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 á 295. fundi bæjarstjórnar Ölfuss. Tillögurnar eru:

Breyting á deiliskipulagi Unu- og Vesturbakki.

Efla ehf. leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulaginu „Athafnasvæði vestan Óseyrarbrautar Unu- og Vesturbakki". Deiliskipulagssvæðið er stækkað lítillega og hefur tveimur lóðum verið bætt við það að Hraunbakka 3 og 5.

Deiliskipulagstilla Unu-og Vesturbakki

 

Deiliskipulag fyrir Skæruliðaskálann Ólafsskarði

Haukur Benediktsson hefur unnið deiliskipulagstillögu fyrir Skæruliðaskálann í Ólafsskarði við Jósepsdal sem gerir meðal annars ráð fyrir endurbyggingu skálans og lóð umhverfis hann.

Deiliskipulag Skæruliðaskálinn

 

Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn frá 1. desember 2021 með athugasemdafresti til  13. janúar 2021. Hægt er að senda ábendingar eða athugasemdir á netfangið skipulag@olfus.is fyrir 13. janúar 2022.

 

Gunnlaugur Jónasson, skipulagsfulltrúi

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?