Auglýst er skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi Ölfus er snýr að samfélagsþjónustusvæðinu S4. Til stendur að útvíkka svæðið svo koma megi fyrir nýju hjúkrunarheimili sem stendur til að reisa á allra næstu árum.
Skipulagslýsinguna má finna neðst í þessari auglýsingu. Frestur til að gera athugasemd við lýsinguna er til og með 24. September 2025.
Skipulagslýsingin er til umsagnar á Skipulagsgáttinni á https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1270
Í Skipulagsgáttinni er hægt að:
- Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
- Leggja fram athugasemdir
- Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn
Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.
Skipulagslýsing
Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.
Sigurður Steinar Ásgeirsson
Skrifstofu- og verkefnastjóri
Umhverfis- og framkvæmdasvið